Translation would be ready soon !   

 

Upplýsingar um Studios92.com LTD

0208 802 6646 / 07956 372 686


(Information about Studios92.com)

Click Here to send an E-mail

Við leigjum út húsnæði til vinnandi ferðamanna, viðskiptafólks og erlendra nemenda allstaðar að úr heiminum. Allt okkar húsnæði er staðsett í Arsenal, Finsbury Park, Higbury, Manor House, Vauxhall, London (Piccadilly Line, Victoria Line, British Rail), í zone 2 og 3, í 10 til 15 mínútna fjarlægð frá miðborg London.
Öll herbergin eru nýlega uppgerð, hafa ísskáp og sjónvarp með fjölmörgum sjónvarpsstöðvum. Einnig er sími til úthringinga í hverju herbergi sem eru, tilvaldir fyrir tölvutengingu.
Á þessari vefsíðu veitum við ekki einungis hjálp til að finna almennilegt húsnæði heldur munum við einnig gefa ýmis ráð til dæmis um hvernig á að fá vinnu og hvar. Okkar markmið er að bjóða hágæða húsnæði á verði sem þú hefur ráð á.

Upplýsingar um húsnæði í London (Information about London budget accommodation)

Við sérhæfum okkur í leigu á húsnæði handa vinnandi ferðamönnum, viðskiptafólki og erlendu námsfólki alls staðar að úr heiminum, frá einni viku til sex mánaða. Við erum með eins-, tveggja- og þriggjamanna herbergi.

Herbergin eru öll staðsett í norður London nálægt neðanjarðalestarstöð, lestarstöð og/eða strætisvagnastoppustöð. Nálægt Arsenal neðanjarðarstöðinni er hinn þekkti Arsenal Stadium sem að fótboltaunnendur ættu að kannast við. Einnig eru þar í hverfinu spennandi skemmtistaðir og pöbbar.

Öll herbergin eru hreinleg, nýlega innréttuð og upphituð. Í hverju herbergi er sjónvarpstæki og ísskápur. Í öllum herbergjum er sími sem hægt er að taka á móti símtölum í og hringja úr. Það kemur sér vel þegar leita á að vinnu og eða tengja tölvu.
Það myndast mjög skemmtilegt andrúmsloft þegar fólk allstaðar að úr heiminum búa saman.

Leigjendur hafa eigin lykla, það eru engar reglur um útivistartíma og engir foreldrar. Hægt er að fá aðgang að faxtæki og netfangi. Einnig höfum við upplýsingar um atvinnumiðlanir. Leigan innifelur allt til almennrar notkunar (nema síma) eins og aðstöðu til að strauja, hægt er að fá þvott þveginn gegn sanngjarnri greiðslu og gestir hafa aðgang að eldhúsi.

Við vonum að þið ákveðið að slá til og gista hjá Gainsborough Studious meðan þið dveljið í London. Endilega sendið okkur e-mail eða hringið í okkur á milli 10.00 og 18.00 (GMT) í síma  0044- 208-802-6646 eða 0044 7956- 372-686 alla daga vikunnar og spyrjið um Dino.

Okkar markmið er að bjóða upp á gistingu, sem innfelur alla venjulega þjónustu, skemmtun og hjálp við að finna vinnu, á miklu lægra verði en þekkist á öðrum gististöðum fyrir ungt fólk í London. Við biðjum ykkur ekki að greiða neitt við pöntun né heldur háar fyrirframgreiðslur. Við biðjum einungis um greiðslukortanúmer við bókun til að tryggja pöntunina.
 

Til að tryggja öryggi gesta okkar: (For your own safety)

Hafa öll herbergi reykskynjara
Eru reykingar bannaðar
Í öllum eldhúsunum eru:
Hitaskynjari
Slökkvitæki
Eldvarnarteppi
Gaseldavélar, sem eru reglulega athugaðir vegna öryggis
Allar hurðar hafa öryggislykla
Öll vandamál eru leyst innan klukkutíma

Við fyrstu heimsókn, fá gestir eftirfarandi ókeypis: (when you stay with us for the first time)

Tvo klukkutíma af internettengingu til að láta fjölskyldu og vini vita nýjustu fréttir, auk þess sem tíu næstu klukkutímar af internettengingu eru á hálfvirði.
Ótakmarkaðan tíma til að nota tölvu til að búa til ferilsskrá og umsóknarbréf.
Tækifæri til að senda 15 föx til atvinnumiðlana og/eða fyrirtækja í London.
Tækifæri til að senda 2 föx utanlands, ef foreldrar eða vinir hafa ekki aðgang að interneti (til að láta vita af sér).
Drykk- óáfengan eða áfengan.
 

Bókun & umsóknareyðublað (booking and application form)

Við verðum glöð að heyra frá ykkur, ef þið hafið áhuga á að dvelja hjá Studios92.com. Öll herbergin hjá okkur eru nýlega uppgerð og með því tryggjum við að gestir okkar njóti dvalarinnar. Sendið okkur eftirfarandi upplýsingar í gegnum tölvupóst. Við munum reyna að svara öllum bréfum innan sólarhrings. Við munum gera okkar besta í að svara öllum spurningum sem þið gætuð haft. Eftir að þið gefið upp eftirfarandi upplýsingar verðið þið sett á biðlista sem eykur líkurnar, svo um munar, á dvöl hjá okkur. Það verður farið með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

1. Titill (herra, frú, fröken)...Fullt nafn...
2. Aldur og starfsheiti...
3. Fjöldi gesta og aldur...
4. Þjóðerni og fæðingarstaður...
5. Hefur þú komið áður til London?
6. Lengd dvalar óskað...
7. Tegund húsnæðis: fyrir einn, tvo(hjónarúm eða tvö samstæð rúm),þrjá...einsmannaíbúð...
8. Dagsetning komu (dagur/mánuður/ár) og tími komu til London (24 tímar sólarhrings)...
9. Símanúmer (munið landsnúmerið)...
10. Faxnúmer og netfang...
11. Heimilisfang...
12. Tilgangur ferðar (skemmtun, vinna, nám)...
13. Hversu miklu hefur þú ráð á að eyða í húsnæði (á viku fyrir manninn í pundum)?
14. Hvaða leitarvél á netinu notaðirðu til að finna okkur (lykilorð)?
15. Reykirðu?
16. Spurningar:

Ef listinn hér fyrir ofan var fylltur út rétt og skilmerkilega hjálpar það okkur við að kanna hvað viðskiptavinir okkar vilja, spara peninga til að markaðssetningar á netinu- peninga sem hjálpa okkur til að halda verðinu niðri. Listinn hjálpar okkur einnig til að svara fyrirspurnum og pöntunum fyrr. Sendið okkur e-mail...það er opið hjá okkur alla daga vikunnar og ekki gleyma að mæla með okkur við vini og kunningja.

Verðlisti (Price List)

Herbergi    Leiga

1. Þriggja manna (ísskápur & sjónvarp)...frá 90£ á mann á viku.
2. Tveggja manna* (ísskápur & sjónvarp zone, 3)...frá 80£ á mann á viku.
3. Tveggja manna* (ísskápur & sjónvarp zone, 2)...frá 80£  á mann á viku.
4. Tveggja manna* (ísskápur, sér baðherbergi, sjónvarp)...frá 110£ á mann á viku.

*Tveggja manna=hjónarúm eða tvö einsbreið rúm.

5. Eins manns (ísskápur & sjónvarp, zone 3)...frá 140£ á mann á viku.
6. Eins manns en-suite (sér baðherbergi, ísskápur, sjónvarp)...frá 210£ á mann á viku.
7. Viðskiptaherbergi fyrir tvo...frá 210£ á viku.
8. Eins herbergis íbúð...frá 350£ á viku.
9. Tveggja herbergja íbúð...frá 450£ á viku.
10. Þriggja herbergja íbúð...frá 600£ á viku.
 

Leiga innifelur efirfarandi þjónustu (Rent includes the following facilities)

1. Í öllum herbergjum eru símar til að taka á móti símtölum í án gjalds. Einnig er hægt að hringja úr símanum með notkun símkorta og internettengja tölvur.
2. Þjónusta til að taka á móti föxum ókeypis og einnig er hægt að senda föx gegn lágu gjaldi. Við geymum einnig allan póst upp til sex mánuða eftir að gestir fara(ef eftir því er óskað).
3. E-mail (ókeypis móttaka pósts )
4. Eigin lyklar og engar útivistarreglur.
5. Hrein, nýlega uppgerð herbergi með húsgögnum.
6. Meðmælabréf fyrir banka og fyrirtæki (frítt) ásamt hjálp við ferilsskrár (CV).
7. Upplýsingartafla með störfum í boði.
8. Hrein rúmföt.
9. Sjónvarp með ótal sjónvarpsstöðvum (flest herbergi hafa Sky TV).
10. Heitar sturtur allan sólarhringinn.
11. Upphitun íbúða (18.00-23.30 & 05.00-10.00).
12. Notkun á eldhúsi allan sólarhringinn.
13. Þvotta (6£) og hreinsunarþjónusta (Verð fer eftir flík).
14. Reikningar: rafmagn, hiti, gas, vatn og skattur til borgarinnar.
15. Þjónustugjald.
16. Félagsaðild.
17. Hjálp við skattaafslátt.
18. Ráðgjöf um vegabréfsáritun.
19. Aðstaða til að strauja.
20. Handklæði (ókeypis) og ókeypis kort af svæðinu.
21. Ókeypis internetaðgangur um helgar.
22. Hjálp við að opna bankareikning.
 

Fyrir utan alla þá frábæru þjónustu sem við bjóðum hér að ofan komum við einnig og sækjum gesti okkar á Arsenal neðanjarðarstöðina. Þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af þungum og miklum farangri. Það er nauðsynlegt að hafa samband við okkur frá flugvellinum, til að við getum ákvarðað komu ykkar á Arsenal stöðina. Þá getum við skipulagt það að einhver bíði eftir ykkur við komuna. Ekki slæmt! Við erum 100% örugg um að þið verðið svo ánægð við komuna að þið mælið með okkur við alla vini ykkar, sum herbergin okkar eru svo falleg að þau gætu verið herbergi á þriggja stjörnu hóteli!
 
 
 
 

 

© 2001 Studios92.com ltd web site is protected by copyright law


Email: info@studios92.com Advertise with Studios92.com Ltd

London Accommodation BOOK A HOTEL  020 8802 6646   BOOK A HOTEL  0208 800 1102  BOOK A HOTEL  07956 372 686


[Home] [London Hotels] [London Youth Hostels] [London Guide] [World wide Accommodation]